Ég held að hápunkti lífs míns væri náð ef einhver myndi tala um mig sem
foxí kvikindi.
Annars finnst mér þetta blogg æði sem er yfir landann að ganga svo hallærislegt og "five years ago" að ég fæ mig ekki til að uppfæra þessa síðu oftar en raunin er. Ég neita að taka þátt í þessu.
Annars er hér skemmtileg saga úr lífi mínu*. Áður en ég varð mamma þá straujaði ég allar taubleyjurnar sem ég var búin að kaupa og var jafnvel að spá í að halda því áfram. Nonni veit ekkert fyndnara þessa dagana en að spyrja mig hvort ég ætli ekki að fara að strauja bleyjur. Ég hef sent honum morð-augnaráðið mitt á móti með lélegum árangri.
*Það er óþarfi að benda mér á að nú er ég komin í mótsögn við málsgreinina á undan... Ég geri mér sorglega vel grein fyrir því.