mánudagur, júní 30, 2003
sunnudagur, júní 29, 2003
Mikið rosalega er ég háð tækninni. Um daginn var ég klukkulaus, gsm-símalaus, bíllaus og var þar af leiðandi alveg glórulaus.
Þetta var mjög erfið lífsreynsla. Ég átti t.d. stefnumót við stelpurnar og mætti náttúrulega ekki á réttum tíma því ég vissi ekki hvað klukkan var. Svo þegar ég loksins áttaði mig á því að ég átti að vera mætt komst ég ekki á staðinn því ég var ekki á bíl og strætó hefði tekið mig 45 mínútur. Ég gat heldur ekki hringt til að láta vita af mér, fyrr en eftir dúk og disk þar sem ég var ekki með nein símanúmer á mér (þau eru öll í símanum). Sem betur fer var ég ekki heima hjá mér því þá hefði ég verði netlaus líka en ég gat semsagt farið á netið og reddað símanúmeri.
Þær áttuðu sig strax á hvers kyns var, enda búnar að þekkja mig í 20 ár. Ég var að komast í dáldið pirrað skap. Svo þær brugðust skjótt við, renndu eftir mér og ég náði akkúrat í heita réttinn. Gott að eiga góðar vinkonur.
Hjúkkan komin með nýja síðu með fullt af skemmtilegum myndum og slúðri... solid. Þar með úreldist reyndar hlekkurinn hér til vinstri en ég kippi því í lag þegar ég kem aftur til ATL í ágúst.
fimmtudagur, júní 26, 2003
Sæti strákurinn á rannsóknarstofunni í CSI er á Íslandi! Ekki amalegt að rekast á hann í Nóatúni...
Og síðasta færsla var ekki grín. Þegar ég las hana yfir núna áðan datt mér í hug að þeir, sem ekki þekkja mig vel, gætu haldið að þetta sé grín en það er það ekki.
Ég tek til baka allt slæmt sem ég hef nokkurn tíma sagt um Justin Timberlake. Hann er flottur og lögin hans eru skemmtileg. Eftir að ég sá myndbandið við Cry Me a River (eða Show Me a River eins og einhver söng hér um árið...) þá finnst mér hann æði. Nýjasta framtak hans, Where is the Love, er frábært lag og ég mæli með því ef þið eruð ekki búin að heyra það nú þegar.
föstudagur, júní 20, 2003
Ég þori að setja talsverða upphæð á það að Magga Dóra mæti í nótt. Gæti jafnvel trúað að hún mæti í búning... ég veit fyrir víst að hún á hatt, harrypotter gleraugu og galdrastaf.
Ég er annars að skipuleggja hvaða kúrsa ég eigi að taka á næstu önn. Fyrsta skráningartímabil er reyndar búið en ég er ekki alveg sátt við hvaða kúrsa ég skráði mig í og er að hugsa um að breyta. Ætla að nota aðferð sem Dan, vinur okkar í USA, ætlaði að nota og mér líst vel á. Málið er að það er svo mikið úrval að kúrsum að hann notar stundaskrána til að velja. Planið hjá mér er semsagt að vera bara í skólanum á þriðjudögum og fimmtudögum sem er náttúrulega algjör snilld. Stundatöflurnar mínar síðustu tvær annir hafa verði hörmung, í skólanum alla daga og alltaf með göt á milli tíma, svo nú er kominn timi til langra helga og massívra daga þess á milli. Gat m.a.s. fundið ótrúlega spennandi kúrsa til að taka þá en nú verður fókusað á stjórnun og seðla (vs. biðraðafræði, forritun og fleira sem ég veit að lesendur síðunnar fylgdust með af áhuga á síðustu önn). Enda held ég að sé kominn tími til að ég læri eitthvað um peningahliðina, Nonna finnst það allavega. Nú þegar ég er orðinn annars árs nemi (úha!) get ég líka farið að velja eftir kennurum sem er ansi mikill munur. Ég hef reyndar bara verið með einn arfaslakan kennara í þessum skóla og hann er stærðfræðiprófessor (think línuleg algebra þeir sem voru með mér á ári í verkfræði). Hinir kennaranir eru samt misgóðir og nú vel ég bara bestu ;)
Úff, svaf í 4 tíma í nótt því ég var að lesa svo spennandi bók. Rússneski reyfarinn Krýningarhátíðin, ekkert smá mögnuð og svo bíða Dauðarósir og Synir duftsins eftir Arnald Indriðason á borðinu. Verst samt með að vera svona sybbin því að ég er að fara í svo magnaða ferð á eftir með Snæfellsnesklíkunni. Nú er förinni heitið í göngu frá Hveragerði að Þingvöllum í kvöld með viðkomu í heitum laugum á leiðinni. Svo verður grillað og chillað í bústaðnum hennar Önnu... humar... mmmm..... hvítín... mmmm.....
mánudagur, júní 16, 2003
Grillmatur á hverjum degi. Ójá, síðustu daga hef ég fengið grillmat/steikur á hverjum degi og það er ekkert lát á því. Gallinn er að mér finnst þetta svo góður matur að ég borða alltaf yfir mig og það er nú ekki beint gott fyrir línurnar að éta yfir sig af hverjum degi af steikum. Ætti kannski að fara bara á Atkins dietinn og hætta að borða kartöflur, brauð og önnur kolvetni og einbeita mér bara að steikunum. Fólk eins og Jennifer Aniston og Davíð Oddsson hafa nú náð af sér helling af kílóum með þessu móti. Hmmm... held ég geri það bara. Grillveislur á hverjum degi og grennast samt!
Ég held samt að hvítvín sé ekki leyft sem gæti verið smá galli... Getur einhver bent mér á kolvetnasnautt áfengi?
Gleðilega þjóðhátíð!
miðvikudagur, júní 11, 2003
I love my job! Strákarnir voru að hengja upp risa-Matrix-plakat með bara mynd af Keanu... verst að nú get ég ekkert unnið lengur vegna þess að augun leita alltaf á plakatið.
Annars var helgin mögnuð þrátt fyrir ýmsa vankanta á pökkunartækni hjá okkur Nonna. Eini gallinn var að þurfa að fara heim á mánudaginn og við erum strax byrjuð að skipuleggja næstu ferð. Svo opnaði Planet Reykjavík aftur um helgina svo ég er ekki laus af námskeiðinu mínu (klukkan sjö á morgnana alla virka daga vikunnar, veit ekki hvað ég var að hugsa þegar ég skráði mig!). Ég var ekkert rosalega fúl þegar stöðinni var lokað í síðustu viku... ekki það að ég sé mjög dugleg að mæta en er þeim mun duglegri að hjóla heim og hreyfa mig eitthvað annað.
föstudagur, júní 06, 2003
Loksins loksins... kemur smá blogg hérna. Ég er svo samviskusöm í vinnunni að mér dettur ekki í hug að blogga á vinnutíma. Vinnan farin að rúlla vel af stað og alveg frábær helgi á Snæfellsnesi í vændum. Nonni form tók sig til.og skipulagði þessa fínu ferð yfir hvítasunnuna. Þetta verður þoggaleg paraferð en hópurinn samanstendur af mér og Nonna, Önnu og Palla, Huldu og Óla og Geir og Hrefnu. Vinkona Önnu ætlar að mæta með sinn kærasta á morgun og svo koma Kiddi og Karólína á sunnudaginn. Planið er að fara í sex tíma kajakferð út í Breiðafjarðareyjar á morgun með grilli í einni eyjunni. Svo verður farið út að borða um kvöldið í Stykkishólmi og tjúttað við tóna Bardhuka en það er einmitt einhver "Viking Ice Blue" blúshátíð þessa helgi í "Hólminum". Á sunnudaginn ætlum við svo á jökulinn, annað hvort með troðara og svo að skíða niður eða bara að ganga á hann. Um kvöldið töfrar Anna Þorbs fram dýrindis grillmáltíð. Á mánudaginn ætlum við að rölta frá Arnarstapa að Hellnum og kannski að láta spá fyrir okkur eða eitthvað í nýaldarmiðstöðinni. Við ætlum samt aðallega að fá okkur vínglas á minsta kaffihúsi landsins í fjöruborðinu á Hellnum. Oh... hlakka geðveikt til!
Við erum flutt frá Láru og í Furugrundina og erum búin að eyða síðustu vikunni í að þrífa skítinn eftir helv... Spánverjana sem bjuggu þarna síðustu mánuðina. Eins og mér finnst nú leiðinlegt að þrífa þá beinlínis hata ég að þrífa skítinn eftir ókunnugt fólk og vorkenni sjálfri mér mikið þessa dagana. Þetta er samt allt að verða búið og lokahnykkurinn verður sennilega í kvöld þegar Nonni mun ryksuga með þessari líka fínu ryksugu sem ég var að fjárfesta í áðan í Elko. Af því að ég fékk svo góðan díl á ryksugunni mátti ég fara í Smáralind og kaupa mér smá föt líka... hehe.
Kvöldið verður rólegt nema að nú er ég í grillveislu í Goðheimum sem er svona hálfpartinn haldin til að fagna því að Siggi var að útskrifast úr Langholtsskóla þótt hann hafi ekkert viljað gera með það að halda eitthvað upp á það. Mamma og pabbi voru að dást að sjálfum sér fyrir að hafa átt börn samfleytt í skólanum í 19 ár en þá benti ég þeim á foreldra Rósu sem hafa átt börn þarna í 29 ár. Geri aðrir betur!
Annars segi ég bara góða helgi og gangið hægt um gleðinnar dyr!
mánudagur, júní 02, 2003
Athyglisvert að fréttin tilgreinir ekki hversu margir allir þessir Flateyringar eru sem skrifuðu undir... kannski svona 100? Geta bara notað þessi fínu göng (með umferðarljósum!) til að fara í apótekið á Ísafirði.
