miðvikudagur, maí 30, 2007

Þolinmæði er dyggð

Sem ég þyrfti nú aldeilis að hafa nóg af núna. Þolinmæði hefur hins vegar ekki verið efst á listanum yfir mannkosti mína hingað til. Þið getið því ímyndað ykkur hversu skemmtileg ég er þessa dagana.

Ég verð samt að viðurkenna að ég hef einu sinni hlakkað meira til einhvers heldur en að hitta mitt eigið afkvæmi. Það var árið 1982 þegar ég kastaði upp á aðfangadag af spenningi yfir gjöfunum. Ég er ekki komin svo langt í tilhlökkuninni núna. Sýnir hvers lags manneskja ég er.

mánudagur, maí 07, 2007

Spurt er

Óheppinn eða bara fífl?

þriðjudagur, maí 01, 2007

Fyndið

Lára hittir naglann á höfðið. Auglýsingastofan hlýtur að hafa verið að gera grín að Framsókn. Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta. Það sem frambjóðendur láta hafa sig að fíflum í aðdraganda kosninga.