föstudagur, nóvember 29, 2002

Okkur var bodid i afganga hja Gesti og Lenu i kvold... namminamm.

Svo er stori leikurinn a morgun. Hann byrjar klukkan half fjogur og vid aetlum ad leggja af stad fyrir hadegi til ad na "Tailgating" partyinu i Athens, verdur orugglega gedveik stemmning. Vid lofum ad vera dugleg ad taka myndir af thessu (vorum dugleg ad taka myndir af matarbodinu i gaer lika) en vid hofum fengid kvartanir yfir myndaleysi. Annars finnst mer ad folk eigi nu bara ad haetta thessu vaeli, ef ykkur finnst vanta myndir herna getid thid bara gefid okkur stafraena myndavel i jolagjof! Haha...

Taladi heillengi vid Rosu i simann i morgun. Aetlunin var ad skipuleggja Floridaferdina en vid endudum a thvi ad tala adallega illa um Asiubuana sem eru herna og skilja ekki baun i ensku og svo er aetlast til thess ad madur vinni med thessu lidi! Ekki misskilja mig, eg er alveg ad vinna med folki fra Asiu sem er mjog fint, jafnvel tho ad that tali nu kannski ekki fullkomna ensku. En vid vorum ad tala um tha sem kunna ENGA ensku og aetlast svo til thess ad madur geri allt af thvi ad thau fatta ekki hvad thad a ad gera. Ein ogedslega bitur... En okkur tokst nu samt ad akveda ad eg myndi panta hotel fyrir okkur a Key West fra 24. til 26. des og svo aetlum vid ad reyna ad finna einhvern godan stad til ad panta bord a 24. des. Ef einhver veit um goda veitingastadi a Key West, vinsamlega sendid mer post.

Mmmm... kalkúnninn í gær heppnaðist ofsalega vel. Við gerðum allt heila klabbið, kalkún, fyllingu, graskesböku, trönuberjasósu og sætar kartöflur. Gestur var hetja dagsins þegar hann fór inn í kalkúninn og náði í hálsinn og hjartað (sem við notuðum ekki í sósuna) og setti fyllingu í hann. Fólk lét orð falla eins og "Það mætti nú bara bjóða forsetanum (forseta Bandaríkjanna) í þennan mat" og "Besti kalkúnn sem ég hef smakkað". Ég er ekkert smá ánægð með okkur!

Svo verður bara lært það sem eftir er af fríinu... vei!

miðvikudagur, nóvember 27, 2002

Fyrirgefið hvað ég hef lítið skrifað undanfarið (svo ég minnist nú ekki á betri helminginn...!) En first things first... Til hamingju með afmælin Edda og Ómar!

Hmjá semsagt, ástæðan fyrir bloggleysi síðustu daga er verkefnaskil en það var eitt í gær og svo eru tvö næsta mánudag. En við munum nú samt taka okkur smá pásu nú um hátíðina til að elda og éta á morgun og svo fengum við miða á aðal leikinn sem er á laugardaginn. Þetta er semsagt aðal fótboltaleikur ársins á móti University of Georgia í Athens og þar sem þetta er útileikur fyrir okkur þá var miðalotterí sem við Nonni "unnum" bæði í. Við ætlum að kaupa okkur svona stóra svamphendi til að veifa og öskra okkur kreisí... jeee!
Síðasti skóladagurinn í þessari viku í dag, thanksgiving á morgun. Gessi og Lena keyptu 17 punda hlunk í gær á 17 dollara! Við erum að tala um 175 kall á kílóið, ljóst að mar fær sér bara kalkún ef mar verður blankur.

Annars verð ég bara að segja að Magga Dóra og Hayley, vinkona hennar, eru ótrúlega líkar!

sunnudagur, nóvember 24, 2002

Ojabara! Eg ætladi a klóið áðan hérna uppi í skóla og annað klósettið er stíflað. Það væri svosem ekki í frásögur færandi nema að það hefur greinilega verið reynt að sturta niður og það er alveg fullt og hefur meira að segja sullast út á gólf. Það er heldur svosem ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir risastóran lolla sem syndir í þessu öllu saman... JUKK!

Ekki thad ad eg se eitthvad ad monta mig eda eitthvad en vid Nonni satum uti a kaffihusi adan og mer var eiginlega of heitt i rullukragabol. Fallegir haustlitir ut um allt og solin skin... getur ekki verid betra!

Í gærkvöld var frumraunin hjá okkur Brynju í barnapössuninni og fórum við alveg á kostum. HC er reyndar mjög þægileg stelpa og kvartar ekki mikið, nema þegar hún á að fara að sofa. Gestur og Lena brugðu sér sum sé í bíó saman, í fyrsta skipti í tæpa níu mánuði og völdu náttúrulega stórmyndina Jackass, kemur ekki á óvart fyrir þá sem þekkja Gest. Ég og Gestur byrjuðum reyndar kvöldið á því að horfa á Liverpool tapa á sannfærandi átt fyrir stórstjörnunum í Fulham. Okkar menn eru heldur slappir þessa dagana og merkilegt að fá á sig 3 mörk, þrátt fyrir að vera með 10 varnarmenn inná. Annars tek ég ofan hattinn fyrir mönnunum hans Magga, það hlýtur að vera gaman fyrir þá að hvíla sig aðeins á botnbaráttunni.

Annars er nú bara lærdómshelgi hjá okkur skötuhjúunum og má búast við ágætis törn fram yfir próf. Ég er að fara í próf í hagfræði á þriðjudaginn í kúrs sem heitir Economics for Managers. Hann ætti reyndar að heita Economics for dummies að mínu mati. Þetta er MBA kúrs sem virðist hafa það að megin markmiði að hafa sem minnst af formúlum og sem allra hæstar einkunnir.

föstudagur, nóvember 22, 2002

Hei já, svo ég haldi nú áfram að nöldra þá er Ben&J.Lo helgi á uppáhaldsstöðinni minni. Slagorð helgarinnar er

"Celebrating the love of Ben & J.Lo"


Jeee ræt, þetta helv... feik, sviðsetta ástarævintýri pirraði mig nú nógu mikið fyrir.

Talandi um flott dansspor þá er ég búin að pikka upp þónokkuð af "flottum" sporum hérna sem ég get ekki beðið eftir að sýna Önnu systur. Við erum búnar að vera með smá ljótudanssporakeppni í gangi í nokkur ár. Anna á ennþá vinninginn með GuidingLight danssporinu sem hún fann uppá (sliiiide....).

Ef þið hafið ekki tekið eftir því þá er þessi færsla gerð klukkan 10:23 á föstudagskvöldi. Já, ég er heima að gera ritgerð meðan Nonni er á djamminu. Mér finnst það ööömurlegt! Ef einhver er vakandi núna (t.d. að koma heim af djamminu) og les þetta þá vinsamlega sendið mér hughreystingarpóst hingað.

Taggfyrir og góða nótt
Brynja

Nelly er með tónleika hérna á sunnudagskvöldið og Nonna langar EKKI að fara með mér svo við verðum bara að sitja heima. Þetta er sérlega súrt í broti þar sem ég er mjög góð að syngja lögin hans. Systkini mín eru sérlega stolt af stóru systur sinni þegar ég tek millikaflann úr Hot in Herre... It's a little bit a uh ah...

Við erum að fara að passa Huldu Clöru í fyrsta skipti um helgina... vííí. Foreldrarnir ætla í fyrsta skipti að bregða sér bæði af bæ og skella sér í bíó (Jackass eða 8 Mile) og við Nonni fáum þann heiður að passa prinsessuna á meðan. Ég var "baby sitting intern" í gærkvöldi enda vita þeir sem þekkja mig að ég hef nú ekki mikla reynslu af að fást við svona kríli. Ég fékk semsagt að hjálpa til við að gefa henni að borða, baða hana og hátta og held að ég hafi bara staðið mig vel.
Annars er það að frétta af HC að hún er nú á þriðja degi í leikskóla og fílar sig líka svona ofsalega vel. Þegar foreldrarnir komu að sækja hana fyrsta daginn þá leit hún upp, veifaði höndunum aðeins og hélt svo áfram að leika sér eins og ekkert hefði í skorist. Þau voru ekkert ofsalega sár... haha.

Viti menn... undur og stórmerki gerast enn!

fimmtudagur, nóvember 21, 2002

Jæja, best að láta undan þrýstingi tjá mig aðeins á netinu. Ég var að skila heimaprófi í dag í Optimization og tókst bara ágætlega til. Í kvöld var svo stofnfundur nemendafélags QCF nema (Quantitative and Computational Finance) og er ég að sjálfsögðu í framboði í stjórnina enda er löngu kominn tími til að kynna vísindaferðir fyrir Könunum. Einhverra hluta vegna hafa nemendurnir hérna ekki fattað það snilldar fyrirkomulag að láta bjóða sér á fyllerí hvern föstudag í nafni vísindanna og sýnir það enn einu sinni yfirborði íslenska kynstofnsins (sérstaklega náttúrulega þess Garðabæíska).

Annars er það merkilegt með þetta nám mitt að mikil áhersla er lögð á atvinnu fyrir nemendur að námi loknu, jafnvel meiri en á námið sjálft. T.d. eru CV allra QCF nemendanna á netinu og er það ansi fróðleg lesning. Inn á milli er fólk með dokstorsgráðu í tölfræði og stærðfræði, auk margra ára starfsreynslu. Einnig má finna nokkra gullmola, eins og t.d. fulltrúa Frakklands í hópnum. Í CV-inu hans telur hann upp fjöldann allan af prófgráðum og verðlaunum og bætir svo við undir lokin að hann sé með svarta beltið í júdó og stundi "exotic dancing". Fyrir þá sem ekki vita hvað exotic dancing er að þá má taka það fram að það er ekki skottís. Hvaða starf hann ætlar að ná sér í út á þessa vanmetnu listgrein veit ég ekki, sennilega er best að senda hann bara í sveitina til Helga Jóns.

Nú, ekki nóg með að maður sé látinn blogga öllum stundum heldur er líka ætlast til að ég standi vaktina í eldhúsinu öðru hverju. Ég er meira að segja kominn með sérrétt, sem merkilegt nokk inniheldur ekki kjöt að neinu tagi. Um er að ræða ítalska grænmetissúpu og stefni ég að því að birta uppskriftina innan tíðar.

Jæja, best að kveðja í bili, nú get ég krotað þetta úr dagbókinni minni með góða samvisku.

Ekkert gerist enn... Nonni er reyndar loglega afsakadur thar sem eg einokadi tolvuna i gaerkvoldi med skyrsluskrifum.

Vildi annars upplysa ykkur um thad ad eg var ad fatta brandara ur Top Secret sem eg sa thegar eg var 12 ara. Thar er einn karakterinn (minnir ad thad se vondi kallinn) sem hetir Paphsmir og thangad til i morgun sa eg ekkert fyndid vid thad. Svo er eg ad lesa i USA Today i morgun um laekkada tidni a leghalskrabbameini i Bandarikjunum og adalastaedan fyrir thvi er aukin tidni a leghalsskodunum (Pap Smears) hja bandariskum konum. Svona er eg nu fattlaus!

miðvikudagur, nóvember 20, 2002

Nú er ég búin að skrifa inn í dagbókina hjá Nonna "Blogga í dag" þannig að nú hlýtur eitthvað að fara að gerast. Fékk þessa fínu hugmynd hjá mömmu að skrifa bara í dagbókina hans ef það er eitthvað sem þarf að gera því skipulagt fólk (eða gleymið) færi yfirleitt samviskusamlega eftir því sem stendur í dagbókinni. Mamma er uppfull af góðum hugmyndum : ) Annars er nú hellingur annað sem mér dettur í hug að ég geti skrifað ef þetta virkar. T.d. "Kaupa Sherling kápuna í Express handa Brynju" og "Bjóða Brynju út að borða í kvöld".

Annars get ég upplýst lesendur þessarar síðu um það að ástæðan fyrir því að Nonni bloggar svona lítið er sú að hann eyðir öllum sínum stundum í tölvunni í það að tefla á Yahoo og hefur þ.a.l. ekki tíma til að blogga. Þeir, sem hafa áhuga á að skora hann á hólm í skákinni geta sent póst hingað.

Ég á lunchdeit með Lenu í hádeginu en hún situr nú alla daga uppi á bókasafni að læra fyrir GRE. Hulda Clara fékk nefnilega inni á leikskóla hérna rétt hjá í einn mánuð meðan mamma hennar lærir. Fyrsti dagurinn hennar í dag. Ég er voða spennt að vita hvernig gengur hjá henni en ef ég þekki hana rétt mun hún sitja stillt og góð á gólfinu og horfa á krakkana leika sér.

Og svo í framhaldi af síðasta bloggi. Mér finnst nefnilega þessar svörtu píur alveg stórmerkilegar (er ég nokkuð "politically incorrect" að tala um þetta?). Ég hef nefnilega tekið eftir því að þeim finnst sumum flott að vera með eins og eina gulltönn. Já, það er yfirleitt önnur tönnin við hliðina á framtönnunum sem er bara gulllituð. Hef séð nokkrar svona svo þetta er greinilega tískufyrirbæri. Hvað um það, hún Brandielle sem afgreiðir mig stundum hérna úti í Publix gekk skrefinu lengra í þessu. Hún er svona tvítug og ég er að segja ykkur það að hún er með gulltennur á öllum tönnum, uppi og niðri! Ég ætla bara rétt að vona að hún geti tekið þetta af...

mánudagur, nóvember 18, 2002

Mer hefur alltaf thott svortu stelpurnar sem afgreida mann herna i bonkum, skyndibitastodum o.s.frv. hafa daldid undarleg nofn. Thaer heita t.d. Shaneeka, Mokesha o.s.frv. En nu tok alveg steininn ur thegar eg for i bankann adan. Haldidi ekki ad Africa hafi afgreitt mig?!

Jæja, ég ætlaði að gefa Nonna smá séns að ná mér í blogginu en nei... hann bloggar bara ekki neitt. Sýnir kannski hvað hann er duglegur að læra og ég ekki. En það er nú frekar rólegt hjá mér akkúrat núna í skólanum en hann er að hamast í heimdæmum og heimaprófi alla daga, duglegur strákur!

Helgin var mjög góð og frekar róleg. Var búin að lýsa föstudeginum í smáatriðum en á laugardaginn komu Gessi, Lena og HC ásamt Þórhalli í mat til okkar. Við elduðum pestósírópskjúlla a la Lára sem heppnaðist bara ofsalega vel en ég var ekki nógu sátt við hvað gestirnir okkar drukku lítið. Haha, Lena er nú reyndar með barn á brjósti og þ.a.l. löglega afsökuð og Þórhallur býr úti í sveit og þurfti að keyra heim svo hann er líka löglega afsakaður. Gessi tók nú reyndar ágætlega á því eftir að prinsessan var sofnuð inni í rúminu okkar. Ég get nú kannski ekki kvartað mikið en mig sárvantar hvítvínsdrykkjufélaga hérna. Sakna Önnu Þorbjargar og Láru sem er alltaf hægt að treysta á í hvítvíninu (sakna reyndar ykkar allra...).

Svo vorum við skötuhjúin bara dugleg að læra í gær og fórum svo á Harry Potter um kvöldið. Skemmtileg mynd en svosem ekkert nýtt, bara myndskreyting við bókina eins og fyrri myndin.

laugardagur, nóvember 16, 2002

Hvað haldiði! Brynja html snillingur lagaði stafastærðina. Nú er þetta allt að koma. Athugasemdir varðandi útlit og notagildi (usability... er notagildi rétt þýðing?) vel þegnar. Ég nefnilega dáldið stressuð með þetta með notagildið því að notagildissérfræðingur frá MIT gæti slysast til að lesa síðuna mína, það er m.a.s. frekar líklegt. Vil ekki vera þess valdandi að hún fái flog þegar hún skoðar síðuna mína ;)

Fór með stelpunum í gær út að borða og svo í bíó. Við fórum á The Ring með Naomi Watts. Söguþráðurinn heldur náttúrulega ekki vatni í fimm sekúndur en það er kannski ekki við öðru að búast af mynd sem fjallar um vídeóspólu sem drepur þig. Ágætis spenna samt og ég var með hausinn undir kápunni minni svona fjórðung úr myndinni. Samt ekki jafn slæm og Lady in White og Blair Witch Project... Rósa og Lára eru ennþá fúlar út í mig fyrir að hafa gert þær að fífli í bíó með því að fara næstum að grenja úr hræðslu.

Nú skora ég á Nonna að fara að blogga eitthvað líka! Hann er alveg að tapa fyrir mér í bloggkeppninni.

föstudagur, nóvember 15, 2002

Skilligi samt alveg þennan mun á stafastærðinni hérna, laga seinna...

Vegna fjölda áskorana breytti ég letrinu úr courier í verdana vegna þess að íslenskir stafir koma víst eitthvað skringilega í gegn.

Annars var ágætis rokk í gær og ég skal viðurkenna að ég var frekar þreytt í skólanum í dag. Nonni er búinn að sitja sveittur að gera heimadæmi í allan dag en núna erum við bara að tzjilla og bíða eftir að Gestur og Lena komi að sækja Nonna en hann ætlar að hjálpa Huldu Clöru að passa Gest meðan við stelpurnar kíkjum út.

Góða helgi!

fimmtudagur, nóvember 14, 2002

Strakarnir voru ad spyrja hvort eg kaemi ekki orugglega i kvold med i Buckhead og eg kunni ekki vid ad segja nei... hehe

Var annars ad fatta ad thad er Friends kvold i kvold, kannski madur skelli ser i heimsokn til Gests og Lenu... (fyrir tha sem ekki vita tha erum vid enn sjonvarpslaus herna og filum thad vel thratt fyrir hrakspar allra vina okkar)

Enivei, sidasti Friends var algjor snilld. Einn af theim thar sem vid lagum i hlaturskasti... watch out for Freddie Prinze Jr.

Er a boko med kvef ad gera skyrslu... ofsafersk. Nu eru helgarplonin oll ad komast a hreint hja okkur, allavega mer. Annad kvold verdur stelpukvold hja okkur islensku stelpunum sem erum herna. Thad er mer, Lenu og svo islenskri stelpu sem var ad flytja hingad med ameriskum eiginmanni sinum og heitir Sally (ekki enska nafnid Sally sko heldur Sally med ufsilonii (ok, nu verdid thid ad imynda ykkur ad eg se med islenskt lyklabord) thvi hun heitir Salvor). Allavega, tha aetlum vid stelpurnar ut ad borda a Cheescake factory sem er svona Greifinn theirra Atlantabua. Thad er ad segja thad er haegt ad fa naestum allar gerdir af mat tharna og allt ofsagott. Svo erum vid ad hugsa um ad skella okkur i bio og svo aldrei ad vita hvad vid gerum svo... Nonni er svo bodinn i heimsokn til Gests sama kvold og aetli their felagarnir verdi ekki i Playstation med litlu prinsessunni henni Huldu Cloru. Svo verdum vid med matarbod fyrir Gest, Lenu og Thorhall a laugardaginn og er aetlunin ad elda annad hvort kjulla a la Bjargey eda kjulla a la Lara med sosu a la Anna Thorbjorg.
Aetli vid verdum svo ekki roleg i kvold nema vid kikjum kannski eitthvad ut i eins og einn olla. Nokkrir krakkar ur bekknum minum aetla ad fara ut i kvold i Buckhead sem er svona Ibiza/Benidorm stemmning og rosalega cheezy djammhverfi. Efast um ad eg nenni med. Ubbs, heyrdud thid thetta? Held barasta ad eg se ad verda gomul...

miðvikudagur, nóvember 13, 2002

Brynja er núna að elda dýrindis íslenskan fisk, sem við fengum frá Gessa massa og Lenu. Fátæklegur námsmannamatur, þrátt fyrir að Brynja hafi verið að massa próf upp á síðkastið. Mér gengur vel í skólanum en er að kolfalla á kafaranámskeiðinu, finnst full gaman að súpa vatn.

Hæ öllsömul og velkomin á bloggið okkar.

Jæja, nú erum við loksins komin með okkar eigið blogg. Fylgist spennt með...