miðvikudagur, apríl 30, 2003

Og allir að senda mér sterka gáfustrauma á morgun, fimmtudag, milli átta og hálf þrjú að amerískum (austurstrandar) tíma. Semsagt, þið sem eruð á Íslandi eigið að gera það frá klukkan tólf til hálf sjö. Reyniði að hugsa "tímaraðir" frá tólf til þrjú og "biðraðafræði" frá hálf fjögur til hálf sjö.
Takk fyrir.

þriðjudagur, apríl 29, 2003

Hérna er myndin sem ég var að setja sem bakgrunn á tölvuna. Tekin á 40 feta dýpi á Flórída um síðustu jól. Mér finnst við ofsasvöl.

Þarf eiginlega að redda mér almennilegu diskaplássi einhvers staðar svo ég þurfi ekki alltaf að vera að nota svona commercial drasl. Veit einhver um góða þjónustu?

Djísuss Christ men... hafiði séð myndirnar af Chloe sem Katrin.is linkar á? Þessi gella er greinilega steiktari en ég hélt (Chloe, ekki Katrin) og get nú ekki sagt að ég hafi haft mikið álit á henni fyrir. FC Chloe ættu að vera sæmilega sáttir við sína konu.

mánudagur, apríl 28, 2003

Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir fórum við ekkert með tölvuna í viðgerð. Kom í ljós að viðgerðin gæti tekið allt að 12 daga og þar sem við erum að fara heim eftir viku ákváðum við að bíða bara með það þangað til við komum aftur út.

Fór í eitt próf í morgun og gekk bara vel. Þurfti samt aðeins að chilla áður en ég gat farið að læra fyrir næstu próf (tvö á fim og eitt á fös) svo við fórum með hádegismatinn upp á þak og lágum í sólbaði í klukkutíma. Nonni er notar Homeblest aðferðina og liggur bara á bakinu en ég geri þetta allt mjög vísindalega og stefni að því að verða fallega gullinbrún... báðum megin (eða er það báðu megin?). Og nú nenni ég ekki að sitja inni og lesa... well well, fjórir dagar í viðbót og svo er þetta búið.

Ég hefði nú aldrei trúað því að ég ætti eftir að sjá Vedderinn taka Black á tónleikum, en það gerðist um síðustu helgi. Kallinn þandi náttúrulega raddböndin af einstakri snilld og reykti sígarrettur og drakk glæran vökva þess á milli. Þeir félagarnir tóku annars helling af lögum af Ten og var ég því massa sáttur, enda þekki ég nýrra efnið ekki eins vel.

Önnur snilldin við tónleikana var klósettferð okkar Gests. Ekki misskilja mig, þetta var bara venjuleg klósettferð, en þegar inn á klósettin kom nokkuð skondin sjón við augun. Ekki nóg með að biðraðir væru við klósettin og hlandskálarnar heldur voru einn biðraðir eftir að fá að míga í vaskana. Öðrum okkar fannst þetta náttúrulega einstakt tækifæri og lét vaða í einni vaskinn - þið megið geta hver.

sunnudagur, apríl 27, 2003

Jæja, þá er barnið okkar að fara til læknis (lesist: tölvan er að fara í viðgerð) svo það verður eitthvað lítið bloggað næstu daga. So long...

Þar sem við erum officially í prófum núna erum við dugleg að horfa á bíómyndir. Erum búin að sjá tvær núna um helgina, eina í bíó og eina á DVD. Fórum á Bringing Down the House í gær með Gesti og þetta var bara fín mynd. Svo sáum við Far from Heaven á DVD og ég verð að segja að ég var alltaf að bíða eftir að eitthvað,bara eitthvað, myndi gerast. Og svo var myndin bara búin. Nonni gafst reyndar upp á að horfa.
Jæja, bækurnar bíða...

Ok fyrst engin barbiestelpa les barbiebloggið ætla ég að spyrja sömu spurningar hér og ég gerði á barbiblogginu fyrir 4 dögum. Vona að einhver þeirra lesi þetta blogg og svari mér kannski en... hvað er gönguklúbburinn Geitin?

fimmtudagur, apríl 24, 2003

Við ætlum að taka okkur langþráða pásu í kvöld og hafa sjónvarpsmaraþon heima hjá Gesti. Honum var sko tilkynnt um síðustu helgi að ég myndi koma í kvöld til að horfa á sjónvarpið hjá honum. Fyrir þá sem ekki fylgjast með erum við ekki ennþá komin með sjónvarp... þrátt fyrir spádóma ýmissa vina okkar. Páogol líkti því m.a.s. saman að fara til Íslands og borða ekki fisk að búa í USA og eiga ekki sjónvarp.
Eníhú, Það er nefnilega tvöfaldur Friends í kvöld, Madonna er í Will & Grace og svo er Michael Jackson Documentary! Úhú.. get ekki beðið eftir að hnýsast aðeins meira inn í líf Kóngsins. Það er búið að auglýsa þennan þátt í margar vikur og börnin hans eru í þessu. Hlakka líka til að sjá Madge í Will & Grace, hún er svo geggjuð.

miðvikudagur, apríl 23, 2003

Úhú... bara tvö blogg í einu.

Hei já, ég var að klára að lesa Stupid White Men eftir Michael Moore (sem var púaður af sviðinu á Óskarnum) og hún er algjör snilld. Ætla að kaupa mér fystu bókina hans og mæli eindregið með honum.

Þið verðið að afsaka bloggleysið en það er bara kreisí að gera í skólanum. Ójá, ég ætla nú ekki að fara að drepa fólk úr leiðindum með því að tala um ritgerðir, próf og verkefni. Hins vegar, þar sem ég hef lítið gert annað en að læra síðustu daga er ekki frá miklu að segja. Aðal er kannski að ég fékk nýtt eintak af US Weekly í dag svo ég get kannski upplýst fólk um það helsta frá Hollywood fyrst svona lítið er að gerast á okkar bæ. Ashton Kutcher og Brittany Murphy (bæði óþolandi) eru hætt saman og Colin Farrell (mmmmm) keypti hús handa barnsmóður sinni. Svo er líka uppi orðrómur um að Paula Abdul og Simon Cowell (American Idol dómarar, fyrir þá sem vita ekki neitt) séu eitthvað hrifin af hvort öðru en enn sem komið er er það bara orðrómur. Ég held ekki. Og síðast en ekki síst, Russel Crowe (sem ég þoldi ekki eftir Gladiator (ömurleg mynd) en er farin að fíla aftur) og Danielle Spencer fóru í roadtrip um Ástralíu í brúðkaupsferð. Og þar hafiði það!

Nonni og Gestur fóru á Pearl Jam á laugardaginn og það var víst meirháttar. Nonni söng hástöfum með allan tímann og svo lúskraði Gestur á fullum unglingi. Nonni verður að segja ykkur betur frá ævintýrum þeirra félaganna...

P.s. Hverjir eru sammála mér í því að Meg Ryan hafi látið setja í varirnar á sér? Hún er óvenju "pouty" þessa dagana.
P.p.s. Þetta er örugglega ekki blogg af því tagi sem Durbal var að vonast eftir.

miðvikudagur, apríl 16, 2003

Mér bauðst að fara í kvöld að horfa á leik í enska boltanum með Nonna og Gesti í Kensington höllinni. Kannski þeir taki líka eins og einn leik í FIFA. Þakka gott boð en ég held ég sleppi því...

Eg aetti ad vera ad laera...

Prof. XXX
I was hoping we could set up a time to meet to discuss my progress in the
class. I did significantly better on the 2nd test, but there is still
room for improvement. I am available tomorrow after class and anytime on
Friday except 11-12pm. Thanks in advance,


Ha ha... alltaf fyndid thegar folk gerir reply to all thegar thad aetlar bara ad gera reply. Hvada steik sendir lika professornum svona post. Er hann ad aetlast til ad hun taki hann i einkatima eda hvad?!!


sunnudagur, apríl 13, 2003

Það skal viðurkennt hér og nú að ég skoða stundum fasteignasíðuna á mbl.is þótt að ég sé ekki að leita mér að íbúð. Ástæðan er einfaldlega sú að mér finnst gaman að sjá hvernig er umhorfs inni hjá fólki sem ég þekki ekki neitt. Og ég á reyndar vonandi eftir að kaupa íbúð einhvern tíman á næstu árum svo það er ágætt að undirbúa sig.

Þetta er samt hin besta skemmtun og alveg merkilegt hvað sumt fólk getur verið ósmekklegt. Þá er ég ekki að tala um að allir eigi að hafa eitthvað sem mér finnst flott inni hjá sér. Nei, ég er að tala um það að sumt fólk innréttar hjá sér þannig að allar heilvita manneskjur (þetta fólk er semsagt ekki meðtalið) geti verið sammála um að það sé beinlínis ljótt. Hvað er t.d. málið með að búa í lítilli kjallaraíbúð og setja inn risastórt gervileðursófasett sem tekur 80% af gólfplássinu, hafa svo bleikar rimlagardínur, gula veggi og gluggatjöld í brjálæðislegu munstri í öllum öðrum litum en akkúrat þeim sem eru á öðrum hlutum í stofunni.

Svo eru sumir sem eiga kannski allt í lagi íbúðir en taka myndir af fáránlegum hlutum. T.d. var einn með ca. 8 myndir af íbúðinni og þar af var ein bara af rafmagnstöflunni. Aha, ég var einmitt að leita mér að flottri rafmagnstöflu...

laugardagur, apríl 12, 2003

Rosalega er ég annars fúl yfir að hafa misst af Scooter í höllinni í gær. Hyper Hyper... Þetta er nú meira sveitaliðið þarna á FM957.

Hvað finnst fólki annars um ensku útgáfuna af Eurovision laginu okkar? Ég verð nú bara að segja að m.v. Eurovision lag finnst mér þetta í skársta lagi. Finnst samt að Birgitta þurfi aðeins að vinna í hreimnum hjá sér. Hún er verri en Halldór Ásgrímsson. Maður skyldi ætla að hægt væri að kenna fólki að syngja hreimlaust eins og eitt lag.

Jæja, best að halda áfram að læra svo ég komist einhvern tíman út í sólina.

Sæll sæll hvað Cirque du Soleil var flott í gær. Ég sat stundum bara og gapti því það var alveg ótrúlegt hvað þetta fólk gat gert. Hlýtur að vera ótrúlegt að hafa fullkomna stjórn á hverjum einasta vöðva í líkamanum eins og þetta fólk hafði.

Helgin verður skemmtileg... NOT! Verkefnaskil í næstu viku á nokkrum stórum verkefnum svo það verður setið stíft við. Nonni gaf mér Coming to America á DVD í gær en fyrir nokkrum mánuðum fylltist ég mikilli löngun til að sjá hana en það er hreinlega ekki hægt að leigja hana á leigunum hérna. Við ætlum semsagt að horfa á hana í kvöld og svo ef mér gengur vel í dag (og fer að hætta þessu nethangsi) kíki ég kannski á The Dogwood festival í Piedmont Park en það er mikil tónlistarhátíð, markaður og svoleiðis. Sólin er loksins aftur farin að skína eftir rigningarviku svo það ætti að vera gaman að kíkja í garðinn.

föstudagur, apríl 11, 2003

Í kvöld ætlum við á Verkai með Cirque de Soleil. Þetta er víst mögnuð sýning og ég hlakka til.

Get ekki sagt að ég sé jafn upprifin af þessum tónleikum og Nonni enda sendi ég Gest með honum.

Ég hef áður minnst á undarleg nöfn svartra kvenna sem afgreiða mann alls staðar hérna. Nöfn eins og Lakeisha, Africa o.s.frv. Í gær var mér þó allri lokið þegar Tequila afgreiddi mig á kaffibarnum í skólanum. Hver skíri barnið sitt í höfuðið á áfengi? Í framhaldi af því fór ég að velta því fyrir mér hvort það myndi ekki vera hægt að skíra dóttur sína Vodka heima á Íslandi. Ég meina, nafnið beygist vel skv. íslenskri málvenju sem virðist vera það eina sem mannanafnanefnd er annt um. Og fyrst það má skíra börnin sín Ljótur þá sé ég ekkert að Vodka.

miðvikudagur, apríl 09, 2003

Pearl Jam eru að koma til Atlanta og ég er búinn að tryggja mér miða - jeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee

mánudagur, apríl 07, 2003

Ég var að spá í að koma mér upp svona "alter ego" til þess að gera usla í mínu eigin kommentakerfi og koma af stað hressilegum umræðum. Reyndi í alvöru að skrifa eitthvað undir dulnefni en það kom allt eitthvað asnalega út svo ég er hætt við og get því sagt frá þessu.

Annars er rigning í dag og ég þarf að labba í skólann. Síðast þegar ég labbaði í skólann í rigningu eyðilagðist gsm síminn minn vegna bleytu. Ég lét mér það samt að kenningu verða og keypti mér regnhlíf.
Við fórum líka í bíó í gær. Fórum á Phone Booth sem var alveg ágæt en samt ekki jafn taugastrekkjandi og ég hafði vonast eftir. Colin Farrell er líka yummí og er nú kominn í 6. sæti á topp 5 listanum mínum. Hann er fyrsti varamaður inn ef kemur í ljós að Jude Law hefur verið að halda við Nicole Kidman og dettur út.

sunnudagur, apríl 06, 2003

Þá hefur síðan verið uppfærð. Ég breytti hausnum og breytti aðeins og endurraðaði krækjunum hér til hliðar (í stafrófsröð). Svo uppfærði ég myndasíðuna.
Ég stillti krækjurnar viljandi þannig að þær opnast hér í aðalglugganum en ekki í nýjum glugga og ástæðan er mín eigin eigingirni. Ég nota nefnilega sjálf mína síðu til að tékka á öllu því helsta sem er að gerast og nenni ekki að vera með milljón glugga í gangi í einu. If you don´t like it send me a mail.

laugardagur, apríl 05, 2003

Glæpaborgin Atlanta er greinilega ekki meira glæpa en svo að ég fékk gallajakkann minn aftur sem ég gleymdi á bar á fimmtudagskvöldið. Er nýbúin að kaupa hann og var búin að vera hálft ár að finna rétta jakkann (eða draumajakkann) svo ég var ekkert lítið glöð að fá hann aftur.

föstudagur, apríl 04, 2003

Og niðurlægingin heldur áfram:

Based on your performance, you have received the following rating:

Tinseltown Triviameister

Way to go--you must rule at cocktail parties. Keep this up and you'll be angling for an E! News Live anchor slot.

Talandi um ad vera grunnhyggin...

Þú hlaust 6 stig.
15-20
Heill þér hilmir! Þú ert sannkölluð fróðleiksnáma og það hlýtur að vera unun að hlýða á tal þitt, en er ekki svolítið þreytandi að vera sífellt spurður að því hvort þú sért færeysk(ur)?

7-14
Þú ert býsna nösk/ naskur og hefur sýnilega góða tilfinningu fyrir íslensku máli og þekkingu á horfnum samfélagsháttum

0-6
Do you speak icelandic? Þetta gekk kannski ekki alveg nógu vel en æðrastu ekki, íslenskan er svo ótrúlega orðrík að lengi væri hægt að tala með orðum sem enginn venjulegur Íslendingur hefði heyrt. En það er alltaf hægt að auðga mál sitt með lestri góðra bóka - og hjá Eddu eigum við nóg af þeim á sanngjörnu verði!

Takid profid her.

Ég er aðeins búin að vera að nöldra vegna jafnréttisumræðu á síðunni hennar Möggu Dóru. Svo fór ég að lesa færsluna hjá vinkonu hennar (færsla frá 3/4/03) líka og nú er ég með samviskubit yfir því hvað mitt blogg er alltaf grunnhyggið.

fimmtudagur, apríl 03, 2003

Nú er einungis einn mánuður og tveir dagar þangað til við skötuhjúin komum heim á klakann og erum við vitaskuld farin að hlakka mikið til. Fram að því verður hins vegar stíf törn í skólanum og kennararnir eru duglegir við að demba yfir okkur verkefnum á lokasprettinum. Erfiðara verður líka með hverjum deginum sem líður að sitja yfir bókunum því að sólin er farin að skína að staðaldri og hitastigið yfirleitt yfir 20 gráðum. Þá er nú betra að þurfa að hanga yfir bókunum í kulda og sút og hlakka til að komast inn í hlýjuna í bókasafninu.

Hah! Ég var einmitt að hugsa um það í gær hvað lyklaborðin hérna í tölvuverinu væru orðin subbuleg og í dag eru komin ný lyklaborð á allar tölvurnar.

Þetta er einmitt leiðin sem ég kýs að fara. Kaupa bara nýtt í staðinn fyrir að þrífa það gamla.

miðvikudagur, apríl 02, 2003

Þá er það komið á hreint. Við skötuhjúin lendum í Keflavík rétt fyrir 10 þann 5. maí næstkomandi.

þriðjudagur, apríl 01, 2003

Ég er jafnvel að spekúlera í að kaupa mér nýja Christinu Aquilera diskinn. This girl can sing! Fólk hefur hvort sem er ekkert álit á tónlistarsmekknum mínum.

Ef einhver veit um sumarstarf fyrir kláran, sætan og skemmtilegan iðnaðarverkfræðing má sá hinn sami senda póst hingað. Kannski dáldið sein af stað að leita en betra er seint en aldrei.

Annars er planið fyrir kvöldið að fara til Gests og Lenu og horfa á American Idol. Við erum algjörlega út úr öllum samræðum hérna því við vitum ekkert hver er hvað í Idol en nú á semsagt að bæta úr því. Í leiðinni ætlum við að koma við á Taco Bell og ná okkur í kvöldmat. Mmmm.... skil ekki af hverju Taco Bell er ekki komið til Íslands.

Hins vegar er mjög skiljanlegt hvað er mikið af feitum Ameríkönum. Heil máltið á stöðum eins og McDonalds og Taco Bell kostar það sama og þrír tómatar úti í búð. Þetta er ekki grín, ég á kvittanir sem sanna þetta! Svo er líka allt hérna þannig að fólk er alltaf hvatt til að kaupa aðeins meira og t.d. munar 70 sentum á því að kaupa 6 kleinuhringi og 12 úti á Krispy Kreme. Þetta er um 10% hærra verð fyrir helmingi fleiri kleinuhringi og auðvitað kaupa allir 12 og éta svo allt saman. Svo má líka ekki gleyma því að það er opið 24 tíma sólarhringsins á Krispy Kreme og bílalúgan er alltaf opin svo maður getur alltaf rennt við og keypt sér "dozen".