fimmtudagur, október 27, 2005

What Barbie wants. Barbie gets.

Þeir sem hafa fylgst með færslunum hér og þekkja mig vita um hvað ég er að tala.

Annars er þessi færsla nú skrifuð meira af nauðsyn en andagift. Mér fannst Jordan og Peter Andre búin að vera nógu lengi það fyrsta sem blasir við. Ekki það að það er alltaf jafn gaman að þeim.

Svo mæli ég með að allir skoði flottustu síðuna í bænum (á eftir síminn.is).

þriðjudagur, október 04, 2005

Magnað brúðkaup



Ég er lengi búin að vera á leiðinni að setja hérna inn mynd af snilldarhjónunum Jordan og Peter Andre. Það er held ég óhætt að segja að þetta lið taki ósmekklegheit upp á nýtt stig. Þetta svínvirkar samt. Ég er a.m.k. búin að kaupa bæði OK blöðin sem fjölluðu um brúðkaupið. Komplett með myndaseríu (þessi er nú bara frekar pen) og hjartnæmum viðtölum við brúðhjónin. Þar tala þau m.a. um að hann hafi endilega viljað að hún hryndi í það kvöldið fyrir brúðaupið (þau eignuðust barn fyrir ca. tveimur mánuðum) og svo getur hann ekki hætt að tala um hvað brúðkaupið var dýrt. Já, hvað myndum við hin gera okkur til skemmtunar ef ekki væru Jordan og Peter.